Fara beint í efni
NETBÁS Yfirfarið og tilbúið á lager
Valmynd
Fylgdu NetBás
InnskráStofna aðgang
01

Veldu NetBás-pakka

Byrjaðu í NetBás Léttum fyrir 990 kr./mán. + 40% og 190 kr. á selda vöru, eða veldu NetBás fyrir 5.900 kr./mán. + 25% og 90 kr. á selda vöru þegar þú selur reglulega. Þú getur greitt 1, 6 eða 12 mánuði.

02

Sendu samþykktar vörur til okkar

Skráðu sendingu á Mínum síðum, staðfestu að innihaldið uppfylli vörureglur NetBás og merktu kassann greinilega með NB-IN númerinu. NetBás tekur ekki við vörum frá SHEIN. Rakningarnúmer má skrá strax eða síðar.

03

Við vinnum vörurnar

Við móttöku fara vörurnar í yfirferð, myndatöku, skráningu og lager. Hver samþykkt vara fær sitt eigið V-númer og lagerstaðsetningu.

04

Þú ákveður verðið

Þegar vara er tilbúin færðu tilkynningu og velur söluverðið. Kerfið sýnir söluþóknun og hvað þú færð.

05

Við seljum og sendum

Kaupandi getur keypt vörur frá mörgum eigendum í einni körfu. NetBás tínir, pakkar og sendir eina pöntun.

06

Þú færð inneign

Úr söluverðinu dragast þóknun og fast pökkunar-/afgreiðslugjald samkvæmt pakkanum þínum. Eftirstöðvar fara fyrst í bið og verða síðan lausar samkvæmt uppgjörsreglum NetBáss.

Pakkar fyrir mismunandi magn

Veldu bás sem vex með þér

Léttur er með 40% söluþóknun og 190 kr. pökkunar- og afgreiðslugjald á selda vöru. NetBás er með 25% söluþóknun og 90 kr. gjald á selda vöru. Báðir pakkar innihalda móttöku, vinnslu og lager. Gjaldið er eingöngu dregið af seljanda þegar vara selst; kaupandi greiðir ekkert sérstakt pökkunargjald. Þú sérð áætlaða inneign áður en verð er staðfest.