Fara beint í efni
NETBÁS Yfirfarið og tilbúið á lager
Valmynd
Fylgdu NetBás
InnskráStofna aðgang
Hvað kostar að opna NetBás?

NetBás Léttur kostar 990 kr./mán. + 40% söluþóknun + 190 kr. pökkunar-/afgreiðslugjald á hverja selda vöru og er fyrir allt að 25 virkar vörur. NetBás kostar 5.900 kr./mán. + 25% söluþóknun + 90 kr. pökkunar-/afgreiðslugjald á hverja selda vöru og er aðalpakkinn fyrir allt að 100 virkar vörur. Hægt er að greiða 1, 6 eða 12 mánuði; 6 mánuðir fá 10% afslátt og 12 mánuðir 20%. Móttaka, myndataka, skráning, lager og afgreiðsla eru innifalin í þjónustulíkaninu.

Þarf ég að taka myndir og skrifa auglýsingar?

Nei. Þú sendir vörurnar til okkar, við yfirförum, myndum og skráum þær. Þú stjórnar verðinu og getur samþykkt eða hafnað verðtillögum.

Tekur NetBás við vörum frá SHEIN?

Nei. NetBás tekur ekki við SHEIN-vörum, óháð aldri, ástandi eða kaupverði. Ekki setja slíkar vörur í sendingu til okkar. Ef SHEIN-vara berst er henni hafnað og seljandi greiðir sendingarkostnað ef hann óskar eftir að fá hana senda til baka.

Get ég fengið óseldar vörur aftur?

Já, svo lengi sem varan er ekki frátekin, pöntuð, seld eða bundin við opið skil-/ágreiningsmál. Ef þú vilt fá vöruna senda til þín berð þú sendingarkostnaðinn. NetBás staðfestir beiðnina og kostnað áður en sending er afgreidd.

Hvað gerist ef kaupandi skilar vörunni?

NetBás sér um skilamálið. Ef um lögmæt skil eða endurgreiðslu er að ræða er sala seljanda leiðrétt. Sé inneign enn í bið er hún bakfærð þar; hafi upphæð þegar verið greidd út getur leiðrétting myndað skuldastöðu sem þarf að jafna.

Þarf kaupandi að skoða myndir og lýsingu?

Já. Þar sem vörurnar eru notaðar eru myndir, ástandslýsing, stærð og tilgreindir ágallar mikilvægur hluti af upplýsingunum fyrir kaup. Atriði sem eru skýrt sýnd eða lýst eru almennt ekki falinn galli, en lögbundin réttindi vegna óupplýstra galla eða rangrar lýsingar standa áfram.

Get ég skilað notaðri vöru sem ég keypti á netinu?

Almennt já: það að vara sé notuð tekur ekki eitt og sér af 14 daga lögbundnum rétti neytanda til að falla frá fjarsölusamningi. Undantekningar eru aðeins þær sem lög heimila. Við venjuleg skil vegna þess að kaupandi skiptir um skoðun greiðir kaupandi beinan endursendingarkostnað.

Hvað ef vara er gölluð eða ekki eins og lýst?

Þá er málið ekki bara venjulegt skipti um skoðun. Hafðu samband við NetBás án ástæðulauss dráttar. Við skoðum vörulýsingu, myndir og gögn og meðhöndlum málið samkvæmt lögbundnum rétti vegna galla.

Hvernig merki ég kassann sem ég sendi til NetBás?

Þegar þú skráir sendingu færðu NB-IN númer. Skrifaðu það greinilega utan á kassann. Ef sendingin er í fleiri kössum skaltu merkja þá t.d. 1/3, 2/3 og 3/3. Áður en sending er stofnuð staðfestir þú að innihaldið uppfylli vörureglur NetBás.

Hvaða gjöld bætast við þegar ég kaupi?

Í greiðsluferlinu sérðu alltaf heildarverðið áður en greiðsla er staðfest. NetBás viðskiptagjald er 2,9% af vörukaupum eftir afslátt og sending er sýnd sérstaklega. Ekkert sérstakt pökkunargjald er lagt á kaupanda.

Get ég notað inneign til að kaupa?

Já. Lausa inneign og NetBás-inneign má nota þegar greiðsluferlið býður það. Ef inneignin dugar ekki greiðir þú eftirstöðvar á öruggri greiðslusíðu.

Hvenær get ég óskað eftir útborgun?

Þegar laus inneign er að minnsta kosti 15.000 kr. geturðu stofnað útborgunarbeiðni, að því gefnu að engin skuld eða önnur hindrun sé á reikningnum.